Auglýsing

Hćtt ad blogga

26. nóvember 2007 klukkan 11:15
Eg er hætt thessu blogg veseni.  Ég er ad leggja mig alla fram thessa dagana vid ad einfalda líf mitt og eitt af thví er ad hætta thessu bloggi.  Ég er ekki hætt ad hugsa um heilsuna, langt í frá, ég nenni bara ekki ad tilkynna thad hingad statt og stødugt.  Ég ætla núna ad einblína á ad klára lokaverkefnid mitt og eiga skemmtilega tíma. 
Gangi ykkur øllum vel

kv
Heilsufrík

Batnađ og gengur ágćtlega

15. nóvember 2007 klukkan 17:01
Mér er batnað og mætt aftur í vinnu.  Dagarnir eru búinir að ganga upp og ofan en yfirhöfuð ágætlega.  Vigtin mjakast niður og ég er komin niður í 101,3 kg.  Alveg að fara að komast undir þriggja stafa töluna.  :)
Ég er ekki að setja inn matardagbók fyrirfram en ég er samt að fylgja prógramminu mínu nokkuð vel.  Svo lengi sem vigtin mjakast niður þá er ég sátt.  Væri æðislegt að missa hálft kíló á viku :)
Þá ætti ég að vera komin undir 100 kílóin eftir rúmar 2 vikur.

Breyting og dagur 10

12. nóvember 2007 klukkan 16:57
Það varð smá breyting í dag.  Ég var veik heima og þurfti að borða eitthvað gott ;) Púkinn tók völdinn fyrri part dagsins en hann er sofnaður aftur.
Breytingarnar sem urðu eru:
Hádegismatur: varð stór skál hvítt pasta með osti og pizzasósu og skál af haframjöli og kókosi með rest af súkkulaðikremi frá köku sem ég bakaði um daginn.
Kvöldmatur: Verður 2 kínarúllur, 100 g hrísgrjón og salat.

Ég er búin að henda restinni af kreminnu í tunnuna.  Svona hlutir eiga ekki að vera til hjá manni...hehe

Dagurinn á morgun
MM: Hafragrautur með eplum og undanrennu
Millimál: Gulrætur
HM: 1 rúgbrauðsneið með léttsmurosti, 1 banani og amk 2 gulrætur
Kaffi: Appelsínusafi og 1/2 skammtur af Herbalife með próteini
KM: Fiskur og pönnusteikt grænmeti
Kvöld: Kakóbolli og 1 hrökkbrauð með smurosti

Prófa nýtt

11. nóvember 2007 klukkan 18:27
Mér finnst ég ekki vera alveg nóg og dugleg að fylgja planinu mínu þannig að ég ætla að prófa að skrifa hér inn á hverju kvöldi hvað ég ætla að borða næsta dag.  Ef eitthvað breytist svo hjá mér, þá tilkynni ég það hingað inn.  Þetta hjálpar mér að vera heiðarleg sem er grunnurinn í því að ég nái árangri.  Þið verðið sem sagt samviskan mín.

Á morgun, mánudag 12. nóv ætla ég að borða eftirfarandi:

MM: Skál af jógúrt með AllBran og 1 banana
HM: 1 sneið rúgbrauð með léttsmurosti og 200 g grænmeti
Kaffi: 2 hrökkbrauð með léttosti og papriku
KM: Pasta með kjúklingi og grænmeti (max 150g soðið pasta og minnst 150 g grænm)
Kvöld: Mandarína og epli

Hljómar bara vel, ekki satt?

Gengur vel

10. nóvember 2007 klukkan 07:35
Ég er búin að tapa 1,5 kg á nokkrum dögum.  Ótrúlegt alveg.  Þann 6.nóvember var ég 103,3 kg en er búin að lækka smám saman yfir vikuna og er núna 101,9 kg.  Bara 2 kg í nýjan tug. 
Ég hafði ekki mikla trú á því að þetta myndi virka en það er sko að virka fyrir mig.  Jafnvel þótt ég fari ekki 100% eftir prógramminu.  Svo finnst mér æðislegt að geta spurt og fengið breytingar.  Ég spurði næringarráðgjafann minn út í það að mér fyndist matarskammturinn minn á kvöldin of stór, og hún kom með það snilldarráð að borða þá bara minna :) Finnst ykkur þetta ekki einfalt og yndislegt???  Hlæjandi
Ég er bara eitt sólskinsbros hérna.  En núna ætla ég að fara og fá mér morgunmat.

Hvađ er máliđ?

05. nóvember 2007 klukkan 19:56

Er sá danski ekki málið?  Mér finnst allir vera að ná svo góðum árangri með danska kúrnum.  Er ómögulegt að lifa eftir honum til lengri tíma?  Mér finnst ég vera svo rosalega áttavillt og vanta stuðning.  Ég er með matarplan frá næringarfræðingi sem á að vera hið eina rétta en danski kúrinn er enn ýktari.  Ég þarf að ná af mér 37 kílóum og vil helst ná að rífa af mér í gær amk 10 kg.  Ég er alltaf þreytt og er á mörkum þess að verða þunglynd.  Sjálftraustið er í molum og álit mitt á sjálfri mér er ekkert.  Ég virðist ekki geta tekið ákvörðun og staðið við hana.  Ég ákveð einn daginn að fara ekki eftir neinum kúr.  Næsta dag er Herbalife málið og ég kaupi Herbalife fyrir 20 þús.  Tveimur dögum síðar er það listi frá næringarráðgjafa og þarnæsta dag, eða bara um kvöldið er það danski kúrinn.  Núna langar mig mest að drífa mig á fund hjá danska og skrá mig inn, eins og ég hef gert amk 5 sinnum áður en hef alltaf hætt eftir innan við 3 vikur.  

Hvað á ég að gera?????  Ég gæti grenjað og geri oft.  Mig langar að vera fókuseraði í lífi mínu og hætta að eyða öllum þessum tíma í að hugsa um mat og megrun.  

Ég er með frábæran lista frá næringarráðgjafa sem segir hversu mikið ég á að borða daglega og ég ætti að geta farið eftir honum.  Enginn megrun, ekkert furðulegt, ekkert bannað, bara passlega mikið af hollum mat.  

Sko, ég er búin að tala sjálfa mig í hring.....Fyndið hvað ég er rugluð......

 

Update: Fór í ræktina eftir langt hlé.  Bara hress

Ný vinna

01. nóvember 2007 klukkan 13:47
Ætlaði að vera rosalega dugleg í dag og fara út að hlaupa en ég er alveg búin á því.  Ég flutti mig um set í dag og fékk nýja skrifstofu til að vinna lokaverkefnið mitt á þar sem ég var að byrja að vinna sem aðstoðarmanneskja á einni skrifstofunni hér.  Eftir fyrsta daginn, sem by-the-way fór allur fram á dönsku, er ég bara búin á því.  Ég ætla því að fara fljótlega heim og ekki nota meiri dönsku í dag........ Fer í mesta lagi í göngutúr í kvöld, annars bara snemma í háttinn.  Reynir þokkalega á andlegu hliðina að eiga að fara að sinna vinnu sinni á tungumáli þar sem málþroski manns er á við 10 ára gamalt barn.  Ef þetta kennir mér ekki dönsku, þá læri ég hana aldrei. :)
Annars eru matarmálin búin að vera upp og ofan í dag.  Búin að borða mjög hollt og passlega skammta fyrir utan eitt og hálft croissant sem hafa læðst upp í mig yfir daginn ;) 

Gengur ágćtlega

29. október 2007 klukkan 10:39
Ég held áfram þótt dagurinn í gær hafi farið fyrir ofan garð og neðan.  Datt í smá sukk en...batnandi mönnum er best að lifa.
Ég fékk mér beyglu í morgunmatinn (grófa) með léttum rjómaosti, reyktum silung og kapers á annann helminginn og ost og sultu á hinn.  Með þessu drakk ég appelsínusafa og vatn. 
Þetta var full mikið fyrir mig.  Næst dugar mér 1 brauðsneið eða 1/2 beygla.
Annars er ég bara að reyna að hætta að hugsa um hvaða "megrunarkúr" ég eigi að fara eftir.  Ég veit vel að þeir virka ekki fyrir mig.  Ég er búin að léttast svo oft um meira en 20-30 kg en bæti þeim alltaf aftur á mig.
Ég ætla þess í stað að borða hollar máltíðir 3x á dag og ekkert á milli mála nema ávexti, grænmeti og létta jógúrt.  Með þessu ætla ég að hreyfa mig í amk 60 min á dag.  Ef þetta virkar ekki, þá endurskoða ég málið en ég ætla ekki í megrun.  Ég ætla að borða mig sadda á matmálstímum og vera dugleg að hugsa um sjálfa mig.  EKKERT RUGL OG ENGAR ÖFGAR.  Þetta er nýja nafnið á síðunni minni.  Hvernig líst ykkur á?

Ţá er ţađ fyrsti dagurinn

25. október 2007 klukkan 09:01
Takk fyrir innlitið allar.  Þá er formlega hafinn fyrsti dagurinn í nýjum lífsstíl.  Ég fór út að borða í gærkvöldi þannig að ég get ekki sagt að ég sé svöng svona í morgunsárið.  Fékk mér bara smá trópí og kaffibolla í morgunmat.  Svo er ég að fara aftur út að borða í hádeginu en ég ætla að velja mér salat í matinn þá. Læt ykkur svo vita hvernig það gengur.

Ađ byrja?

24. október 2007 klukkan 13:23
Þetta er víst enn eitt átaksbloggið.  Ég er búin að reyna allt og ætla því að gefa blogginu líka séns.  Sjá hvort ég næ ekki að finna mér stuðningsaðila hér inni sem ég get aðstoðað í sínu átaki og geta aðstoðað mig.  Hvað segið þið?  Hvaða kúr eru þið að fara eftir?  Hvernig er ykkar prógram?  Hvernig er best fyrir mig að gera þetta?  Ég veit ekkert hvað ég er að gera.
Endilega látið mig vita hvað þið eruð að gera.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Nýtt líf

Innskráningar kubbur