Gengur ágćtlega
29. október 2007 klukkan 10:39
Ég held áfram þótt dagurinn í gær hafi farið fyrir ofan garð og neðan. Datt í smá sukk en...batnandi mönnum er best að lifa.
Ég fékk mér beyglu í morgunmatinn (grófa) með léttum rjómaosti, reyktum silung og kapers á annann helminginn og ost og sultu á hinn. Með þessu drakk ég appelsínusafa og vatn.
Þetta var full mikið fyrir mig. Næst dugar mér 1 brauðsneið eða 1/2 beygla.
Annars er ég bara að reyna að hætta að hugsa um hvaða "megrunarkúr" ég eigi að fara eftir. Ég veit vel að þeir virka ekki fyrir mig. Ég er búin að léttast svo oft um meira en 20-30 kg en bæti þeim alltaf aftur á mig.
Ég ætla þess í stað að borða hollar máltíðir 3x á dag og ekkert á milli mála nema ávexti, grænmeti og létta jógúrt. Með þessu ætla ég að hreyfa mig í amk 60 min á dag. Ef þetta virkar ekki, þá endurskoða ég málið en ég ætla ekki í megrun. Ég ætla að borða mig sadda á matmálstímum og vera dugleg að hugsa um sjálfa mig. EKKERT RUGL OG ENGAR ÖFGAR. Þetta er nýja nafnið á síðunni minni. Hvernig líst ykkur á?

70kg
Líst vel á þetta hjá þér, og nafnið líka. Þarf að fara endurskoða alveg hjá mér frá A-Ö. kveðja 70kg
#2
29. október 2007 klukkan 19:05
mjóna
Hæ skvís Líst vel á planið :-) þetta er rétt hugafar...þetta er ekki megrun.
#3
31. október 2007 klukkan 19:20
Ætla svo að drífa mig í að hreyfa mig, það hjálpar svo mikið og maður allur hressari :)