Ný vinna
01. nóvember 2007 klukkan 13:47
Ætlaði að vera rosalega dugleg í dag og fara út að hlaupa en ég er alveg búin á því. Ég flutti mig um set í dag og fékk nýja skrifstofu til að vinna lokaverkefnið mitt á þar sem ég var að byrja að vinna sem aðstoðarmanneskja á einni skrifstofunni hér. Eftir fyrsta daginn, sem by-the-way fór allur fram á dönsku, er ég bara búin á því. Ég ætla því að fara fljótlega heim og ekki nota meiri dönsku í dag........ Fer í mesta lagi í göngutúr í kvöld, annars bara snemma í háttinn. Reynir þokkalega á andlegu hliðina að eiga að fara að sinna vinnu sinni á tungumáli þar sem málþroski manns er á við 10 ára gamalt barn. Ef þetta kennir mér ekki dönsku, þá læri ég hana aldrei. :)
Annars eru matarmálin búin að vera upp og ofan í dag. Búin að borða mjög hollt og passlega skammta fyrir utan eitt og hálft croissant sem hafa læðst upp í mig yfir daginn ;)
Heiða
Heheh trúi því að þú sérst búin á því! Maður þarf að hugsa svo extra mikið þegar allt fer fram á tungumáli sem maður er óvanur... og orðaforðinn náttúrulega eins og þú segir... á við 10 ára barn!
#2
04. nóvember 2007 klukkan 21:41
Já þessi danska er erfið það er á hreinu.
Baráttukveðjur,,,glingglo,,,,,,